21.6.2025 | 14:37
Læknisfræðin í hættu: Vísindakirkja í höndum reglu-púka
Vísindakirkja í höndum reglu-púka stjórnvalda
Læknisfræðin stendur frammi fyrir hættu, og þetta snýst um pólitíska valdboðun, beina aðför og pólitísku valdi sem er farin að líta út eins og vísindakirkja stýrt af reglu-púkum og ráðandi pólitík sem vilja ráða og stýra allri læknisfræði með trúarbrögð í stað rökra vísinda! Ég var sviptur lækningaleyfi 5. júní 2025 vegna símtala við sjúklinga mína, en þetta er bara yfirskinég fékk í staðinn refsingu frá Landlækni fyrir að tala við fólk í síma vegna gagnrýni á vísindalegar forsendur sóttvarnaaðgerða eins og bólusetninganna og fleira!
Raunverulegt tilefni er barátta mín gegn sóttvarnaráðstöfunum, umræða um ivermectin og mótmæli gegn frelsisskerðingu, réttindum og sjálfstæði upplýstra einstaklingasérstaklega nauðsyn upplýsts samþykkis sem ég bendi á! Lögin (nr. 34/2012 og reglugerð nr. 570/2015) styðja réttindi mín, en landlæknir notar þessa fáránlegu ástæðu símtala sem ástæðu sviptingar til að þagga niður í mér. Benoit í Lúxemborg er í svipuðu farihann barðist með greinum sínum gegn grímum og bólusetningum, eins og rannsóknir hans sem vísa til Jefferson/Cochrane, ávísaði hýdroxýklórókíni og ivermectin (þótt hýdroxýklórókín hafi verið hans helsta mál), og var sviptur lækningaleyfinu 2022 og 2025 með 5.000 evra sekt. Hann kallar þetta pólitískt líka.
En þetta er stærra en við auk þúsundir annarra lækna og tel flestir!
Þetta er stærra en við. Læknisfræðin á að vera um að hjálpa fólki og treysta á vísindi, en núna er þetta orðið eins og kirkja þar sem ein rödd ræður, stýrt af reglu-púka og ráðandi pólitík. Frelsi fagsins er í hættu með þessu, nema allir séu sáttir við slíkten ekki þessi hér og tel flestir læknar! Ég lagði fram erindi í tugum skjala til Umboðsmanns Alþingis, en í stað samræðu fékk ég refsingu frá landlækni. Eiðurinn minn lofaði að setja sjúklingana í fyrsta sæti, en þegar kerfið notar símtöl sem skjöld og forðast að takast á við gögnin mín, verður þetta blind trú. Listgreinin mínþað að nota innsæi og reynsludeyr ef ég má ekki hugsa sjálfstætt, og ég gæti endað sem vélmenni með sérhönnuðu greindarforrit hins opinbera leyfilega í hendi sem ræður og segir mér hvað ég skal gera!
Reglu-púkarnir hafa fjarlægt nándina í starfinu, þvinga lækna til hlýðni, hræða með uppsögnum og setja ekki mína sjúklinga í forgang. Ef þetta heldur áfram tapast hjartað í starfinu, og læknisfræðin verður bara vopn í höndum pólitískra valdhafa.
Ég á mér vonvið, þúsundir annarra lækna og flestir verðum að halda áfram að tala. Við vitum hvað við stöndum fyrir, og kannski er tími til kominn að hrista upp í kerfinu hér og í Lúxemborg, jafnvel með vísindafólki sem kemur og opnar augu og vekur von. En fyrst: síminn minn fer á hljóði, nema ég vilji meira af þessu reglu-púka! Við verðum að standa upp gegn þessari vísindakirkju.
Umfjallanir fjölmiðla um mál Benoît Ochs, fyrr og þessa dagana:
Anti-vaccine doctor handed suspended sentence, allowed to keep practicing
Doctor faces ban over virus claims https://en.paperjam.lu/article/delano_doctor-faces-ban-over-virus-claims
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)