Sóttvarnalæknir Bandaríkjanna grillaður í beinni

Tony Fauci - grætur

Sóttvarnalæknir Bandaríkjanna grillaður í beinni 

Yfirheyrslur yfir Tony Fauci hófust í gærmorgun 3.júní fyrir þingnefnd bandaríkjaþings. Eins og kunnugt þá hefur Tony gegnt stöðu yfirmanns undirstofnunar Smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna NIH, sem

yfirmaður NIAID (National Institute Of Allergy And Infectious Diseases) um áratuga skeið og um tveggja áratuga skeið einnig gegnt stöðu yfirmanns allrar lífefnavopnaframleiðslu bandaríska hersins, DoD (Department Of Defense, DARPA).

www.pbs.org/newshour/politics/watch-live-fauci-testifies-on-covid-19-origins-and-response-in-gop-led-house-hearing

Og hér á YouTube þræði

WATCH LIVE: Fauci testifies on COVID-19 origins and response in GOP-led House hearing

Hér í góðri umfjöllun Chris Martenson

Tony var kallaður fyrir þingnefndina og í upphafi var sagt eitthvað á þessa leið: 

"Við verðum að þekkja til upphafs Covid til að geta tekið á framtíða faröldrum"

Svo eru það hinar ýmsu sóttvarnaaðgerðir - tveggja metra reglan, notkun maska o.fl. - óvísindalegar sóttvarnaaðgerðir sem höfðu engin vísindi á bakvið sig en ástæðan fyrir lokunum þjóðfélögum okkar. Byggðist bara á ágiskunum eða fyrirfram áætlun sem ætlað að setja fólk í lost, hræðslu og ótta svo koma mætti öðru að. 

Því er það í fullri mótsögn við ætlun WHO að fara fyrst í að taka yfir allan viðbúnað faraldra eins og nýlega afstaði þing WHA77 í Genf síðustu daga - áður en búið er að gera upp faraldurinn með öllu sem því tilheyri, hreinlega"æðibunugangur" WHO og breytinga alþjóðasamninga sem þeir hafa verið að standa að baki - ótímabær og hreinlega æðibunugangur þeirra sem nú stjórna WHO, framleiðendur bóluefnanna, sem er verið að fletta ofan af í ýmsum þingnefndum bandaríkjanna.

- Bíðum eftir uppgjörinu áður en förum að huga að breytingum alþjóðasamninga Pandemic Treaty og IHR (alþjóðaheilbrigðisreglugerðin)

Tony Fauci svaraði m.a þegar spurður um virkni bóluefnanna : 

"Í byrjun töldum við að bóluefnin veittu vernd gegn covid smitum [þ.e.a.s. væri virkt gegn covid] en það síðan í kom í ljós að svo var ekki." 

Einmitt, "töldum við" eða réttara sagt "giskuðum á" eins og Dr Debora Birx, læknir og einkaráðgjafi forseta bandaríkjanna sagði áður fyrir annarri þingnefnd. Engin vísindi voru fyrir 2ja metra reglunni.

Og Tony Fauci hefur verið staðinn að lygum áður fyrir þingnefndum bandaríkjaþings og heldur því áfram í upphafi þessara yfirheyrslna - en þetta er rétt að byrja og verður yfirheyrslum yfir honum haldið áfram næstu daga og viðbúið að Dr Rand Paul taki hann engum vettlingatölum og verði með áhugaverða grillun á Fauci

Af nýafstöðnu þingi WHA/WHO í Genf og yfirlýsingu Tedrosar

Að öðrum samverkamanni Tony Fauci, sá sem situr í forsæti fyrir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), Tedros Adhanom Ghebreyesus sem sagði þetta m.a. á 77. Alþjóðaheilbrigðisþingi WHO, WHA77.

"Bóluefnin eru "árangursrík og örugg" og það þarf að taka á gagnrýnisröddum samsæriskenninga og álhatta, sem á enskri tungu sagðir breiða út misinformation, disinformation og malinformation." Birti nýlega á Fb svæði mínu (Kalli Snæ) einmitt myndband af Tedrosi á nýafstöðun þingi WHO þegar hann hóf upp raust sína og stofnunarinnar að þyrfti að taka hart á gagnrýni á bóluefnin

"Það er kominn tími til að taka andstæðinga bóluetninganna í bakaríið" eða eins og það hljómar á enskunni

"It's time to be more aggressive in pushing back on anti-vaxxers."

 

Meira síðar af þessum áhugaverðu yfirheyrslum í bandaríska þinginu sem er langt í frá lokið

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband