12.5.2025 | 15:11
Á bólakafi í Kófinu
Köfum dýpra í Kófið
- hér í spjallformi (tekið úr nýlegu spjalli, lítillega stytt og breytt)
Jæja, ok, látum kaldhæðnina liggja þar sem hún er og köfum dýpra, því vandamálið í kófinu var alvarlegra en flesta grunar og vilja meðtaka, margir geta það hreinlega ekki, og bæti því hér við þremur mikilvægum atriðum.
1- Í fyrsta lagi,
vísindaleg nálgun er gulls ígildi, ekki bara gull, en hún er aðeins eins góð og þeir sem beita henni. Þú snertir á hvernig sérfræðingar og stjórnmálamenn notuðu framtíðarspár til að grafa mistök aðgerða í kófinu, en það vantar aðeins upp á hvernig stjórnvöld misnotuðu sálfræðilega þekkingu til að keyra narra-tifið sem þjónar elítunni.
Taktu Asch tilraunirnar, sem sýna hvernig félagslegur þrýstingur fær fólk til að fylgja hjörðinni. Í kófinu var þetta augljóst: Flott slagorð fagurra fyrirheita, eins og vertu heima, bjargaðu lífum eða gerum þetta saman, voru sálfræðilega hönnuð til að tryggja fylgni með óttastýringu og hjarðhegðun. Þessi slagorð lofuðu öryggi og samstöðu, en umræða um skaðann sem þú nefnir skuldir, verðbólga, vængstífð menntun og sálrænar afleiðingar sem við munum finna fyrir í áratugi var kæfð.
Söguleg dæmi eins og MKUltra, þar sem CIA notaði sálfræði til hugstýringar, eða hugmyndir um Operation Mockingbird, þar sem fjölmiðlar voru sagðir notaðir til að móta skoðanir, sýna hversu langt svona misnotkun getur gengið. Þú nefnir hvernig sérfræðingar tala kinnroðalaust til fjölmiðla, en hvað ef fjölmiðlar voru hluti af áróðursvélinni? Þá varð almenningur fórnarlambið - fórnað á altari pólitískra markmiða, eins og þú gefur í skyn.
2. Í öðru lagi,
margar sérfræðiráðleggingar í kófinu voru ekki vísindalegar, heldur minntu frekar á ráð fáráða í stöðum sérfræðinga.
Erindi mitt til Umboðsmanns Alþingis 7. maí 2025 (mál nr. 181/2025) afhjúpar hvernig sóttvarnaaðgerðir og tengdar áætlanir 20202023 byggðu á vafasömum forsendum. Brook Jackson-málið afhjúpaði svik í Pfizer-rannsóknum fölsuð gögn, hunsaðar aukaverkanir, engin upplýst samþykki.
Bandaríska ríkisstjórnin vissi af þessu en ýtti áætlunini í gegn án minnstu skammar, ja, kannski ekki alfarið, því reyndu að leyna því í 75 ár!
Hagstofu-gögn sýna 83,9% aukningu í ungbarnadaða 2021 og 20,22% aukningu hjartaáfalla fullorðinna 2022, sem samræmast alþjóðlegum vísbendingum um skaða, eins og hjartaskaða og áhrif á frjósemi, sem deyddi fólk og olli óafturkræfum skaða.
Íslenska lyfjastofnunin (IMA) og heilbrigðisráðuneytið héldu áfram, þrátt fyrir þessi gögn, án þess að blikka auga.
Þetta er ekki vísindaleg nálgun - þetta er skammarlegt ábyrgðarleysi, bind fylgni við alþjóðlegt "narra-tif".
Veiran sjálf, þó viðurkennt núna að manngerð, var aðeins byrjunin - bólusetningaáætlunin var það sem skaðaði og deyddi fólk og krystalliserar skaða kófsins.
3. Í þriðja lagi,
dómkvaðning Truncale dómara (Brook Jackson-málið, 9. ágúst 2024) staðfestir að áróðrinum í kófinu var stýrt af hernaðaraðgerð DoD/DARPA, bandarískra hernaðaryfirvöldum, með Pfizer sem undirverktaka undir OTA samningum. Þetta bendir til að kófið veiran, manngerð undir stjórn DoD/DARPA sem kveikja og afleiðingar áætlana, studdar flottum slagorðum hafi verið sálfræði- og hernaðaraðgerð, þar sem WHO dansaði eftir pípu bandarískra stjórnvalda (við hérlendis líka).
Samsæriskenning? Nei, þetta er svartur sannleikurinn og hann passar eins og flís við rass við gagnrýni viðmælandans. Ef sérfræðingar eru leiksoppar í hernaðarlegu áróðursspili, hvað þýðir þá fylgdu vísindunum?
Þessi þrjú atriði Sálfræðilegur áróður með flottum slagorðum fagurra fyrirheita, ráð fáráðra í stað visinda og DoD/DARPA- stýrður hernaður sýna hvernig vísindi urðu tæki til að fórna almenningshagsmunum, eins og þú lýsir með skuldasöfnun og sálrænum skaða í kófinu. Ég tek heilshugar undir kall þitt eftir meiri gagnrýni og minni dýrkun, en við þurfum líka algjört gagnsæi heiðarleikans öll gögn á borðið, takk!
Við þurfum siðareglur um sálfræðilegar herferðir og menntaðan almenning sem þekkir brellurnar: Ótti, hjarðhegðun og fögur slagorð mega ekki stýra okkur. Og við, sem sérfræðingar, verðum að vera fyrstir til að gagnrýna okkur sjálfa án þess að setjast á æðri stóla
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning