16.6.2025 | 23:39
Erum við á leið í átt að "zombie"-þjóðfélagi sem ógnar framtíð okkar?
Sóttvarnaaðgerðir á Íslandi á árunum 2020-2023, þar á meðal mRNA-bólusetningar, leiddu til alvarlegs skaða á lýðheilsu, studdar blekkingum, hræðsluáróðri og sálfræðilegum áróðri stjórnvalda. Gögn benda m.a. til taugafræðilegs skaða, fæðingahruns, umframdauðsfalla og misnotkunar genabreytingatækni í hernaðarlegum tilgangi, sem bendir til ásetnings fólksfækkunar. Sem einn meðstofnenda World Council for Health (WCH) samtaka tugþúsunda lækna og vísindamanna í 55 löndum um allan heim sem stofnuð voru árið 2021 til að veita óháðar lausnir á heilbrigðisvandamálum tengdum covid og bólusetningunni hef ég tekið þátt í greiningu þessa vanda og leit að lausnum til að bregðast við þeim alvarlegu afleiðingum sem stjórnvöld bera ábyrgð á 1]. Undanfarnar vikur hef fjallað um málið hér á kallisnae.blog.is og sent ábendingar til Umboðsmanns Alþingis um að taka afstöðu til alvarleika málsins2].
Lykilatriði: Hvað gerðist og af hverju skiptir þetta máli?
Á Íslandi voru 290.000 einstaklingar bólusettir gegn COVID-19, sem samsvarar 79% landsmanna, án upplýsts samþykkis. Sóttvarnalög (nr. 19/1997, breytingar 2020) heimiluðu takmarkanir, en vísindalegur grundvöllur var veikur eða enginn nema óskhyggjan ein, byggður á líkönum og óáreiðanlegum RT-PCR-prófum (97,4-99,9% falskt jákvæð) sem ýktu smittölur 3]. Þessar aðgerðir voru látnar réttlæta einangrun, lokanir og mRNA-bólusetningar, sem ollu alvarlegum skaða:
Taugasjúkdómar og geðræn vandamál
mRNA-bóluefni innihalda eiturbrodda (spike protein) prótín sem frumur líkamans framleiða sem valda bólgum í hjarta, æxlunarfærum, heila og taugakerfi, trufla hugarstarfsemi og auka hættu á blóðtöppum. Gögn sýna:
44.000% aukningu á geðrofi,
31.500% aukningu á geðklofa og
15.000% aukningu á sjálfsvígshugsunum og
530.000% aukningu þunglyndis hjá bólusettum.
Auk þess sýna rannsóknir aukna tíðni taugasjúkdóma eins og Alzheimer og Parkinson hjá bólusettum 12].
Þessi áhrif geta leitt til alvarlegrar geðheilsukreppu hjá einstaklingum og samfélagi þjóðar með meirihluta íbúanna sprautaða með þessum bóluefnum.
- Frjósemi, fæðingarhrun og ungbarnadauði
- Frjósemi kvenna minnkaði um 37,47%, fæðingum á Íslandi fækkaði um 15% og um 66% hjá bólusettum konum5]. Pfizer-gögn sýna 80% fósturlát á fyrstu mánuðum 7]. Barneignir per konu komnar niður í 1,59, okkur fækkar. Þessi þróun ógnar getu fjölskyldna til að eignast heilbrigð börn.
- Ungbarnadauði á Íslandi jókst um 83,9% árið 2021, reiknað frá 28. viku meðgöngu til 28 daga eftir fæðingu, samhliða bólusetningu þungaðra kvenna6].
- Umframdauðsföll í öllum aldurshópum jukust um 30,5% árið 2022, sem bendir til markvissrar fólksfækkunar stjórnvalda (democide), samanber áætlunina Great Reset" 9].
Leynd og blekkingar
Bandarísk stjórnvöld reyndu að leyna Pfizer-gögnum í 75 ár]. DoD/DARPA stýrði þróun mRNA-tækninnar, með Pfizer sem undirverktaka, staðfest í dómskjölum, án fullnægjandi öryggisrannsókna8]. Fjölmiðlar ýktu ótta og þögguðu niður gagnrýni 2]. Aðgerðirnar brutu íslensk lög, Helsinki-yfirlýsinguna og Nürnberg-reglur um upplýst samþykki 10].
Hvernig var þöggunin skipulögð og hverjir urðu verst úti? Stjórnvöld nýttu sálfræðilega þekkingu til að ýta undir ótta og hjarðhegðun, byggt á Asch-tilraunum um félagslegan þrýsting11]. Slagorð eins og vertu heima, bjargaðu lífum" og ekki drepa ömmu og afa" ýktu gróflega hættuna. Efasemdarfólk var ákært, hótað fangelsisvist, sett á svartan lista hryðjuverkamanna, stjórnvöld bönnuðu því að taka þátt í umræðu fjölmiðlanna og lagt til að einangra úti í Grímsey2, 12]. Fjölmiðlar þögguðu niður hlutverk DoD/DARPA og ýktu hættu COVID-19 2]. Börn, ungar fjölskyldur og komandi kynslóðir urðu verst úti geðræn vandamál, fæðingahrun og erfðaskemmdir ógna framtíð okkar 2].
Hvers vegna þurfum við uppgjör strax? Áhrifin eru alvarleg: geðtruflanir valda félagslegri einangrun og ofbeldi, fæðingahrunið leiðir til öldrunar þjóðarinnar og erfðaskemmdir veikja mannkynið 2]. Hópmyndunarvitfirring ýtti undir óttann, eins og Desmet, Jung og Arendt lýsa 11]. Án aðgerða glatast mannleg reisn og framtíð barna okkar. Stjórnvöld brutu lög, leyndu sannleikanum og settu líf okkar í hættu því verður að krefjast ábyrgðar.
Hvað getum við gert?
- Krefjumst gagnsæis. Styðjum óháðar rannsóknir á ábyrgð DoD/DARPA, ungbarnadauða og fæðingafækkun öll gögn verða að vera opin!
- Leitum réttlætis. Styðjum málsókn til Mannréttindadómstóls Evrópu og Sameinuðu þjóðanna vegna brota á mannréttindum.
- Verum gagnrýnin. Lærum að þekkja áróður ótta og hjarðhegðunar menntum okkur og börnin okkar til að hugsa gagnrýnið.
- Stöðvum mRNA-bólusetningar. Krefjumst stöðvunar á notkun mRNA-bóluefna þar til öryggi er staðfest með gagnsæjum rannsóknum.
Við skuldum komandi kynslóðum að krefjast sannleika og réttlætis. Við getum haft áhrif og breytt þessu og forðast zombie"-þjóðfélag og verndað mannlega reisn.
Heimildalisti verður settur inn fljótlega
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning